149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

staða ferðaþjónustunnar.

[14:48]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ferðaþjónustan hefur vissulega verið mikill vaxtarbroddur í íslensku atvinnulífi undanfarin ár. Hún hefur haft mikil ruðningsáhrif, gengið hefur styrkst, fjármagn hefur sogast í uppbyggingu ferðamannastaða og hótela. Mjög margt jákvætt hefur gerst í fjölbreyttri flóru ferðaþjónustu um land allt en þar eru einnig svartir sauðir sem koma sér undan sköttum og eru með félagsleg undirboð, skekkja þannig samkeppnisstöðu annarra fyrirtækja og svindla á kerfinu, eins og nýleg dæmi í bílaleigubransanum sýna. Vöxturinn er að hægjast og í því sambandi hef ég ákveðnar áhyggjur af landsbyggðinni. Samkvæmt greiningum hafa ferðir gesta styst og því blasir við að þeir fara styttri hring út frá Keflavík og færri gestir sækja fjarlæg svæði eins og t.d. Vestfirði og Austurland. Nú gæti orðið samþjöppun í ferðaþjónustu þegar vöxturinn er að dragast saman og stærri fyrirtæki gleypt þau minni sem ráða ekki við þennan samdrátt. Samkvæmt gögnum frá Hagstofunni versnaði rekstur ferðaþjónustunnar á síðasta ári miðað við árið 2017 og allt stefnir í að þetta ár verði á sömu lund. Miðað við greiningu Hagstofunnar er ferðaþjónustan orðin stærsti atvinnuvegur alls staðar á landinu annars staðar en á Vestfjörðum þar sem sjávarútvegurinn trónir enn á toppnum.

Mörg svæði þurfa miklu meiri innviðauppbyggingu til að geta tekið við ferðaþjónustu og stóra spurningin er líka: Hvað þolir náttúra landsins? Við höfum vísindalega ráðgjöf fyrir auðlindanýtingu í hafinu og burðarþolsmörk fyrir fiskeldi en höfum við eitthvert burðarþol fyrir landsvæði? Hvað með burðarþol fyrir (Forseti hringir.) landsvæði sem mestur átroðningurinn er á? Ég held að ferðaþjónustan og stjórnvöld þyrftu að skoða það og reyna að stýra inn á þau svæði sem þola meira í ferðaþjónustu.