149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

staða ferðaþjónustunnar.

[15:00]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og ætla að reyna að nýta þessar tvær mínútur til að draga nokkur atriði saman. Í mínum huga er stóra myndin þessi: Fjöldi ferðamanna er ekki það sem skiptir öllu máli. Það er ekki hægt að segja það nægilega oft. Öll okkar störf þurfa að miða að því að bæta gæði ferðaþjónustu og auka verðmætasköpun innan greinarinnar. Til að gera það þurfum við hagnýtar rannsóknir og áreiðanleg gögn. Við höfum gert margt í því en við þurfum meiri fjármuni í hagnýtar rannsóknir og að hafa almennilega yfirsýn yfir það hvað þurfi að rannsaka. Við þurfum áreiðanlegri gögn og meira af þeim.

Ég tek t.d. undir að vægt til orða tekið sé óheppilegt að ekki sé hægt að meta betur fjölda farþega til landsins. Fleiri gáttir til landsins eru langöflugasta og besta leiðin til að dreifa ferðamönnum. Ég get hins vegar ekki tekið undir með hv. þingmanni um að það sé auðvelt að opna fleiri gáttir því að við höfum reynt það í mörg ár. Við sjáum vissulega einhvern árangur af því en það er mikið langtímaverkefni og kallar á mikla þolinmæði þeirra sem að því vinna, sérstaklega á svæðunum. Bæði Norðurland og Austurland fengu sérstakan styrk til þess í fyrra og fá hann aftur í ár. Vonandi skilar það auknum árangri.

Ímynd landsins skiptir líka máli og leiðarljós okkar þurfa að miða að því að styrkja hana. Þar langar mig sérstaklega að nefna orkuskipti. Ef við sæjum fram á að t.d. bílaleigur landsins væru í miklu meira mæli með rafbíla væri það hluti af ímynd landsins og það gæti sömuleiðis orðið til þess að minnka sveiflur, þ.e. ef við værum ekki háð innflutningi á olíu og þar með sveiflukenndu olíuverði.

Um hlutverk markaðsstofanna sé ég fyrir mér að þær gætu haft formlegra hlutverk í markaðssetningu á svæðunum og ég er tilbúin að skoða það sérstaklega í allri endurskoðun á þeim fjármunum. Ég tel að þar sé lykillinn. Við erum búin að gefa út áfangastaðaáætlanir sem eru sýn landshlutanna á hvernig þeir vilja sjá þróun ferðamennsku á sínu svæði og nú er komið að innleiðingu þar.

Varðandi aðgangsstýringu er það ekki þannig að það sé engin aðgangsstýring í landinu. Hún er úti um allt, hún er t.d. í þjóðgörðunum (Forseti hringir.) og það er ekki þannig að það sé bara hægt að stýra með gjaldtöku heldur er vel hægt að stýra án þess að hafa gjaldtöku sem eitthvert sérstakt markmið. Gjaldtaka er hins vegar ágæt leið til að stýra en það fer ekki almennilega saman.

Ef ég hefði alla þræði í minni hendi væru hlutirnir einfaldari en þegar verkefnin eru í mörgum ráðuneytum og stofnunum er það flóknara. Við erum t.d. með almannarétt sem enginn getur almennilega svarað hvað nákvæmlega þýðir. (Forseti hringir.) Það leiðir til þess að það tekur lengri tíma að taka slíkar ákvarðanir þegar á að fara í aðgangshindranir eða gjaldtöku á svæðum sem eru í eigu okkar allra.