149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[15:52]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er réttmæt spurning sem ég spyr og ég óska eftir því að hv. þingmaður svari. Það muna svo sem allir eftir því að sá maður sem talaði mest um hrægammana hér um árið reyndist vera einn þeirra sjálfur. Hann viðurkenndi það meira að segja í blaðaviðtali á þeim tíma að tengsl væru milli fyrirtækis sem hafði verið í hans eigu, Wintris, og aflandskrónueigna.

Ég veit svo sem ekki hver staðan er á aflandskrónueignum eða fyrirtækinu Wintris í dag. Það er ekki neitt sem ég hef aðgang að. Kannski getur hv. þingmaður frætt okkur um það. En það er eðlilegt og það eru ekki eineltistilburðir að spyrja þegar frægt er að þingmenn hafi nú eða hafi haft einhver tengsl í fortíðinni við ákveðin mál, hvort þau séu enn þá til staðar. Sér í lagi þegar það er einhver hætta — ég veit svo sem ekki hversu mikil hún er, en það er óljóst hvort einhver áhætta geti skapast á morgun vegna þessarar úreldingar á RIKB 190226-skuldabréfaflokknum. Við þekkjum að sú áhætta er til.

Þá er eðlilegt að spyrja: Úr því að Miðflokkurinn er kominn í málþófsgír, fyrir hvern er það? Hver græðir? Cui bono? eins og er stundum sagt, með leyfi forseta. Ég sé það ekki í hendi mér. Ég sé ekki hvers vegna farið er í þennan málþófsgír og satt að segja væri eðlilegast að við myndum klára þetta mál núna. Svo myndum við reyna að taka nokkur önnur góð mál fyrir í dag.