149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[15:54]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Forseti. Þingmaðurinn sem talaði hér á undan mér gerðist sekur um meiðyrði. Hann laug og lagði sig fram við að reyna að stimpla inn ógeðfellda mynd sem hann, því miður, og allt of margir félagar hans, hafa á undanförnum árum reynt að viðhalda og koma inn hjá fólki.

Ég hef aldrei haft nein tengsl við nokkrar hrægammasjóði og það hafa heldur engir ættingjar mínir gert. Konan mín tapaði að vísu peningum sem hún átti inni í banka þegar þeir hrundu og gaf megnið af þeim eftir, eins og aðrir sem töpuðu á hruninu.

Þessi framganga hv. þingmanns setur Pírata í nýjar lægðir, finnst mér, hér á Alþingi. Fyrir utan það að kenning hans er svo arfavitlaus, að búa til samsæriskenningu um að með því að koma í veg fyrir að harðskeyttustu vogunarsjóðirnir séu losaðir úr höftum einhliða af hálfu ríkisins, sé á einhvern hátt verið að ganga gegn hagsmunum ríkisins. Hvers konar endemis della er þetta? Og hvað eigum við að þola mikið meira af þessu frá þingmönnum Pírata?

Ég held að a.m.k. í þessu tilviki sé fullt tilefni til að vísa framgöngu þingmannsins til siðanefndar.