meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ítarlega yfirferð yfir þetta mál. Hv. þingmaður verður aðeins að fyrirgefa mér, en ég skil ekki alveg á hvaða vegferð þingmaðurinn og flokkur hans virðist vera á í þessu máli. Það er alveg rétt, eins og hv. þingmaður fór yfir, að það plan sem ríkisstjórnin lagði upp með á sínum tíma um losun hafta vorið 2016 lukkaðist með eindæmum vel og var lykilatriði í því að liðka fyrir losun fjármagnshafta án þess að það hefði alvarlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir þjóðina. Það var einmitt megintilgangur þeirrar áætlunar, hún sneri ekki að því að reyna að hlunnfara með einhverjum hætti eða hafa fé af kröfuhöfunum heldur fyrst og fremst að tryggja að þeir sem þá vildu ganga út með sitt fé gætu gert það undir ákveðnum skilyrðum en þó þannig að efnahagslegt jafnvægi þjóðarbúsins væri í forgrunni, að hagsmunir þess færu þar fremstir. Þetta tókst allt saman vel.
Við hefðum ella væntanlega verið brotleg við skuldbindingar okkar varðandi frjálst flæði fjármagns ef tilgangurinn hefði verið einhver annar. Um þetta snerist rökstuðningur stjórnvalda á sínum tíma, að það væri ekki hægt að hleypa þessu fjármagni út við þau skilyrði sem þá voru öðruvísi en gegn einhverjum afslætti enda þyldi staða þjóðarbúsins ekki þessa stöðu
Nú er staðan hins vegar allt önnur og flýtir í þessu máli, sem hv. þingmaður gerir að umtalsefni, snýr auðvitað að því einu að hér eru um 25 milljarðar að losna núna um mánaðamótin sem geta þá gengið út að öðru óbreyttu en væru mögulega viljugir (Forseti hringir.) til að fjárfesta í innlendum verðbréfum — við vitum ekkert um það í sjálfu sér — ef búið væri að skýra umhverfi þeirra.
Ég myndi (Forseti hringir.) gjarnan vilja heyra frá hv. þingmanni: Hvort er það sem skiptir máli? Er það ekki þjóðhagslegt jafnvægi sem er verið að leitast (Forseti hringir.) við að verja? Stafar einhver ógn af því að þetta skref sé stigið nú? Eða (Forseti hringir.) snerist þetta bara um að fá einhvern góðan díl frá kröfuhöfunum?