149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[16:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að það sé einmitt það sem það mál sem við ræðum núna kristallast í, þ.e. úr hverju menn eru gerðir. Þessi algjöra uppgjöf sem skín í gegn í þeirri lúkningu sem nú er lögð til er þeirrar gerðar að menn ganga á lagið. Menn gengu á lagið. Ég var ekki einu sinni kominn svo langt í að rifja upp framgöngu vinstri stjórnarinnar 2009–2013 í Icesave-málinu. Það kemur kannski í ræðu minni á eftir.

En það er auðvitað ótækt ef þeir sem staðið er í vörn fyrir, sem eru bara íslensk fyrirtæki, íslenskir borgarar, íslenska þjóðin, upplifa að menn lyppist niður þegar reynir raunverulega á. Það er ekki til þess fallið að auka mönnum trú hvað það varðar að staðið verði almennilega í lappirnar þegar flókin mál koma upp. Hér fyrr í dag var komið inn á eitt mál þar sem raunverulega mun reyna á hversu fast íslenskir ráðamenn geta staðið í lappirnar, það varðar hinar margumtöluðu breytingar á reglum um innflutning á ófrosnu kjöti. Þetta eru mál sem eru þeirrar gerðar að allir sem horfa á okkur utan frá vilja og ætla sér að ganga á lagið hvað það varðar að eiga samskipti við stjórnvöld sem gefast upp þegar á reynir.

Ég ítreka þessar áhyggjur mínar: Hvernig horfir þetta við hv. þingmanni? Telur hann að til framtíðar sé núverandi ríkisstjórn að skaða sig með þessari framgöngu og frágangi ef þetta verður lúkning málsins?