149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[18:43]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni kærlega fyrir. Þetta eru áhugaverðar upphæðir. Þetta eru mjög svo háar upphæðir sem okkur veitti ekki af nýta hér til innviðauppbyggingar, eins og það heitir á fræðimálinu. Það væri svo sannarlega hægt að nýta þær upphæðir í öll þau brýnu mál sem ég nefndi áðan og ég trúi ekki að það sé þannig að fólk nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir sér lengur. Það vantar einhvern veginn haldbærari rök ásamt þessum undarlega gjörningi að þurfa að samþykkja og setja í lög þetta mál hér í dag sem enginn skilur.