meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni kærlega fyrir. Auðvitað er það eins og hann segir, þetta mun hafa áhrif á t.d. lyfjakaup. Ég get gefið mér það. Ég er ekki viss um að áhrifin á gengið verði neikvæð í sjálfu sér, ekkert frekar en árið 2016. Þegar útboðið hafði átt sér stað fengum við bara hærra lánshæfismat hjá Moody's og ég ímynda mér að það gæti allt eins gerst. Það breytir samt ekki þeirri stöðu að við erum að missa af töluverðum fjármunum sem við hefðum getað nýtt í allt það sem ég taldi upp fyrr.