meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að mismunurinn á genginu sem aflandskrónurnar koma til með að fara á úr landi, verði þetta frumvarp að lögum, er verulegur. Þar er um verulegar fjárhæðir að ræða, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, sem hefði verið hægt að nýta í brýn verkefni. Þá spyr maður sjálfan sig: Hvers vegna í ósköpunum gefa menn eftir á þennan hátt gagnvart þeim sem vildu ekki vinna með stjórnvöldum og þráuðust við? Hvers vegna gefa menn þetta eftir þegar hægt er að nýta þá fjármuni, sem eru töluverðir? Hér er verið að tala um allt að 12 milljarða, ef ég skil það rétt. Mér er óskiljanlegt hvers vegna ríkisstjórnin gefur eftir á þennan hátt þegar svo háar fjárhæðir eru í húfi.