149. löggjafarþing — 70. fundur, 26. feb. 2019.
lengd þingfundar.
Forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að hafa svona í lokin ákveðið að segja frá því sem gerðist á þingflokksformannafundinum í morgun. Ég spurði einmitt sérstaklega hvort umræður yrðu eitthvað takmarkaðar vegna þess að ég taldi að sjálfsögðu að málið þyrfti að ræða. Að sjálfsögðu sagði forseti að svo væri ekki. Þess vegna erum við sem sé að ræða þetta mikilvæga mál.