meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Takk fyrir þetta, þetta skýrði málið nokkuð. Nú kemur fram að þetta snerist aldrei um einhvern frest, eins og mátti skilja á fyrstu ræðum um málið, vegna þess að fresturinn er liðinn og þetta snýst ekkert um að málið sé að koma inn á síðustu stundu vegna þess að síðasta stundin var löngu liðin þegar umræðan hófst. Hins vegar skýrist það nokkuð af svari hv. þingmanns að hann segir að umræðan snúist fyrst og fremst um það um hvað þetta mál snúist. Úr því að þeir voru ekki með það alveg á hreinu er mjög skiljanlegt að mér hafi ekki tekist að skilja út á hvað málið snerist í máli þeirra, en þeir hafa alla nóttina til að komast til botns í því og ég reikna með því að við fáum nánari fréttir um málið í fyrramálið.