149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[20:21]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, það er náttúrlega algerlega þannig að þjóðin á heimtingu á því að fá að vita um hvað málið snýst og fá svör við því sem komið hefur fram hér og örugglega miklu fleiri spurningum.

Það er nú einu sinni þannig, og ég kom aðeins inn á það í ræðu minni áðan, að það fylgir því mikil ábyrgð að vera alþingismaður. Alþingismaður þarf, í mínum huga, að setja sitt pólitíska höfuð að veði. Ef hann ætlar aftur í framboð þá eru störf hans lögð til grundvallar í þeim kosningum sem verða að loknu kjörtímabilinu. Það hefur því miður þróast allt of mikið á þann veg að alþingismenn eru orðnir allt of miklir stimpilpúðar. Við erum oft að samþykkja hér mál og treystum því að aðrir, sem við trúum að viti um hvað málið snýst, hafi rétt fyrir sér.

Það er akkúrat þannig sem maður vill ekki vinna sem alþingismaður. Maður vill taka upplýsta ákvörðun og greiða atkvæði eða mæla fyrir máli, eða hvað sem er í gangi, upplýstur og meðvitaður um um hvað málið snýst. Það bara tekur frá manni áhugann og viljann og einurðina að hafa það á tilfinningunni að á stundum sé maður bara einhver stimpilpúði. Þess vegna erum við grimmir í þessu máli. Þetta eru engar smáupphæðir sem verið er að tala um. Ég vona að ég hafi svarað þingmanninum að einhverju leyti.