meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta svar. Ég varð nefnilega var við það í hliðarherbergi rétt áðan að hér eru líka stjórnmálamenn sem fannst þetta brölt okkar Miðflokksmanna heldur fyndið. Það kom akkúrat úr þeim hópi sem vildi selja Íslendinga í þrældóm fyrir nokkrum árum. Sá hópur sem ber uppi Miðflokkinn stóð í ístaðinu þá og varnaði því að Íslendingar bæru skuldaklafa langt inn í framtíðina, og börn okkar og barnabörn væru að borga þær syndir sem við höfðum drýgt.
Hv. þingmaður kom réttilega inn á það að við eigum ekki að vera stimpilpúðar. Við eigum að taka okkar sjálfstæðu afstöðu til mála sem berast hingað inn. Þess vegna langar mig til að ánýja það enn við hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér um að það sé algjör nauðsyn á því að þjóðin, sem væntanlega fylgist með okkur núna, verði að fullu upplýst í þessari umræðu um hvað þetta mál snýst og hvaða afleiðingar það mun hafa ef það verður samþykkt.