meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Jú, ég er algjörlega sammála þingmanninum og þakka honum fyrir þetta andsvar. Þjóðin þarf að fá þær upplýsingar sem hún þarf að fá í þessu máli og vonandi endist okkur kvöldið til að komast til botns í því. Það á eftir að koma í ljós en það eru akkúrat, af því að við erum að tala um traust til Alþingis og traust til hinna og þessara stofnana hér á Íslandi, heiðarleiki og upplýstar ákvarðanir sem traustið byggist á. Þjóðin þarf að finna fyrir því að kjörnir fulltrúar séu traustsins verðir.