meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Ég er ánægður að sjá að hv. þm. Einar Kárason fylgist vel með. Hann kallaði áðan eftir samantekt, sérstakri yfirferð um málið, og ég kann að meta að hann skuli fylgjast vel með áfram því nú ætla ég einmitt að reyna að veita svolitla samantekt. Ég var reyndar byrjaður á því áðan. Ég var búinn að rekja það sem lagt var upp með þegar aðgerðirnar í heild sinni, aðgerðirnar tengdar losun fjármagnshafta, voru kynntar árið 2015. Ég rifjaði upp að þær hefðu skipst í þrennt þar sem eitt af þremur meginatriðunum, ein af meginaðgerðunum, snerist um með hvaða hætti losnað yrði við það vandamál sem fólst í aflandskrónum. Ég útlistaði það nákvæmlega hvernig það átti að ganga fyrir sig samkvæmt planinu því það var alveg skýrt. Hins vegar komu brotalamir í þetta á vormánuðum 2016. Ég var byrjaður að rekja það hvernig þær hefðu m.a. birst í framgöngu Seðlabankans og reyndar stjórnvalda líka, því að stjórnvöld hafa unnið þetta mjög náið með Seðlabankanum og verið ljóst að eftirgjöf af hans hálfu væri ekki möguleg án aðkomu stjórnvalda.
Ég hef látið nægja til að byrja með að rekja þetta einfaldlega í gegnum fréttatilkynningar Seðlabankans sjálfs. Á eftir verður vonandi tækifæri til að fara yfir málið að öðru leyti en ég ætla að halda áfram þessari yfirferð, sem byggist eingöngu á fréttatilkynningum úr sjálfum Seðlabankanum, til að reyna að sýna sæmilega knappa mynd af því hvernig hlutirnir fóru út af sporinu jafnt og þétt með þeim afleiðingum að við nálgumst nú fullkomna eftirgjöf stjórnvalda gagnvart þeim vogunarsjóðum sem hafa sýnt minnstan vilja til að taka þátt í þessu verkefni sem gerði losun fjármagnshafta mögulega. Verkefni sem gert var ráð fyrir að allir þyrftu að taka þátt í, allir eigendur aflandskróna og slitabú bankanna.
Ég kemst hins vegar ekki hjá því, vegna þess að ég náði ekki að klára yfirferðina áðan, að rifja örstutt upp það sem ég var búinn að nefna af tilkynningum Seðlabankans. Í fyrsta lagi sagði bankinn loksins í lok maí 2016 að nú yrði útboðið haldið, útboðið sem beðið hafði verið eftir frá því í október 2015. Ég minni á að samkvæmt upprunalegri áætlun var lögð áhersla á að það þyrfti að fara fljótt í gjaldeyrisútboðið einmitt til þess að menn myndu ekki freistast til þess að bíða lengur og vonast til þess að höft yrðu einfaldlega afnumin. Það þyrftu allir að taka þátt í sama heildarpakkanum.
Í maí 2016 kynnir loks Seðlabankinn með hvaða hætti hann muni standa að útboðinu. Ég tíundaði hvernig til stóð að gera það. Þetta áréttar svo bankinn skömmu síðar og fagnaði sérstaklega jákvæðri umsögn lánshæfismatsfyrirtækisins Moody's og sendi frá sér tilkynningu 8. júní 2016 þar sem enn er áréttað að nú verði þetta raunverulega gert og sagt nákvæmlega klukkan hvað og hvernig og minnt á að þetta sé í samræmi við heildaráætlun um losun fjármagnshafta.
Eins og ég gat um var besta verðið sem mönnum gat hugsanlega boðist í þessu útboði 190 kr. á evruna. Á þeim tíma var gengi evrunnar í kringum 138 kr., skráð gengi. Svo gerðist hið óvænta, daginn eftir að bankinn hafði áréttað hvernig þetta allt myndi ganga fyrir sig, að hann ákveður að breyta skilyrðum. Þetta er eftir að einhver samtöl eru hafin við þessa aðila, sem skömmu síðar fóru að auglýsa kosningabaráttu á Íslandi með alveg dæmalausum hætti. Þeim var þegar farið að verða eitthvað ágengt því að Seðlabankinn sá ástæðu til að breyta skilmálum og lengja tímafresti. Líða þá ekki nema fjórir dagar þangað til að Seðlabankinn tilkynnir aftur að hann muni ætla að hverfa frá þeim skilyrðum sem sett höfðu verið — nú er ég u.þ.b. kominn á þann stað þar sem ég var í síðustu ræðu minni — og segir berum orðum, svo ég vitni nú bara í tilkynningu bankans, með leyfi forseta, „ásamt því að ekki er lengur gerður áskilnaður í 5. gr. um að tilboðum undir 190. kr. pr. evru verði hafnað að fullu.“
Með öðrum orðum: Það er ekkert endilega að marka þennan verðlista, ef svo má segja, sem við gáfum út þarna fyrst. Það getur vel verið að við getum látið ykkur hafa meira af evrum fyrir færri krónur, reynið bara bjóða það sem ykkur líst á. Án þess að það hafi verið orðað nákvæmlega þannig.
Líða nú nokkrir dagar. Nei, ekki nokkrir dagar, bara einn dagur. Þetta gerist 13. júní 2016. Daginn eftir reynir bankinn að útskýra betur hvað hann eigi við með þessum breyttu skilmálum og bætir svo við, með leyfi forseta:
„Með breyttum útboðsskilmálum eru tekin af tvímæli um að þrátt fyrir niðurstöður útboðsins gæti SÍ ákveðið hagstæðara útboðsverð en taflan tiltekur.“
Tveimur dögum seinna fer útboðið svo fram. Það þarf að bíða í nokkra daga til að fá að heyra niðurstöðuna úr því. Og hver skyldi hún hafa verið? Ætli það hafi verið mikill áhugi á þátttöku í útboðinu eftir allar þessar meldingar frá Seðlabankanum um tilslakanir? Nei, nú voru menn farnir að kveikja á perunni. Fyrst það væri búið að gefa eftir þetta oft þá væri reynandi að fara fram á meiri eftirgjöf. Aðeins 72 milljarðar eða evrur fyrir 72 milljarða af þeim u.þ.b. 180 sem voru í boði seldust. Þeir voru seldir á lægsta verðinu þrátt fyrir að í upphaflegri tilkynningu bankans hafi komið fram að ef viðskiptin yrðu ekki meiri en svo yrði gengið 205 kr. Það var horfið frá því og menn látnir hafa evrurnar á 190 og látið fylgja sögunni að bankinn ætlaði áfram að bjóða evrur til sölu á því verði, líka fyrir þá sem hefðu ekki viljað taka þátt í útboðinu, útboðinu sem var búið að útskýra að væri lokasénsinn, lokamöguleiki þessara aðila sem höfðu haldið lengst út gagnvart stjórnvöldum til þess að selja evrurnar sínar ella lokast inni á vaxtalausum reikningum. Lokalokafresturinn var ekki lengur lokalokafrestur og bankinn bauðst til þess að selja evrur á 190 kr. til þessara aðila fram hjá útboðum.
Svo gerist það daginn eftir að bankinn áréttar aftur: Við erum sko enn þá til í að selja evrur á 190 kr. jafnvel þótt þið hafið ekki tekið þátt í útboðinu. Ætli hafi verið mikill áhugi á því? Nei, menn eru náttúrlega farnir að átta sig á ákveðinni þróun svoleiðis að það var ekki mikil eftirspurn eftir því að kaupa þessar evrur á 190 kr. Menn vildu fá þær á enn betra verði. Það er tilkynnt um að þetta hafi nú ekki gengið eins hratt fyrir sig og menn vonuðust til og frestur væntanlega framlengdur, en engu að síður bættust bara við 9 milljarðar af því sem seldist hjá Seðlabankanum.
Þá er komið fram í ágúst, 1. ágúst, og Seðlabankinn tilkynnir nú eftir að breytingar höfðu orðið á gengi krónunnar að hann sé áfram með evrur til sölu en nú á 220 kr. Menn geti keypt eina evru fyrir 220 aflandskrónur. Það var ekki mikil sala í því. 12. mars árið 2017 tilkynnir Seðlabankinn að hann sé búinn að semja sérstaklega við eigendur aflandskróna, vogunarsjóði, um 90 milljarða kr. af aflandskrónum sem verði keyptar á verðinu 137,5 kr. á evruna. Á þeim tíma reyndar (Forseti hringir.) var gengið komið niður í 107,5. Ég næ ekki að klára þetta, forseti, og verð að biðja forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.