meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Því er nokkuð auðsvarað, forseti. Mikilvægastur var endanleikinn og trúverðugleikinn, þ.e. að útskýra það einfaldlega að svona yrði þetta og að menn tryðu því. Þess vegna er til að mynda, í umræðu um aflandskrónurnar, lögð gríðarleg áhersla á það að þetta eina uppboð feli í sér endanleika. Núverandi hæstv. forsætisráðherra taldi ekki áhyggjuefni að fresta þessu útboði á sínum tíma þegar það dróst og sagði: Það eru búin að vera mörg útboð hjá Seðlabankanum áður. Þá var einmitt útskýrt fyrir núverandi hæstv. forsætisráðherra: Munurinn er sá að hér er um að ræða lok málsins, endanleika í því hvernig fengist verður við aflandskrónurnar. Menn geta gengið að því sem vísu að ef þeir spila með, taka þátt í að gera samfélaginu kleift að losna úr höftum, fá þeir eitthvað fyrir sinn snúð. En ef þeir ætla ekki að spila með, ef þeir ætla að verða eftirlegukindur og treysta á að stjórnvöld guggni á síðari stigum, þá hafa menn ekkert upp úr því. Nema hvað: Það var skipt um ríkisstjórn og stjórnarstefnu og við sáum hvernig þróunin, eins og ég rakti hér áðan, gjörbreyttist. Reyndar átti það sama við um Arionbankamálið sem var töluvert rætt hér í fyrra og hittiðfyrra. Það sama er upp á teningnum þar. Það var tekin U-beygja og horfið frá endanleikanum og trúverðugleikanum í því plani sem kynnt hafði verið. Það plan átti að skila þeim árangri að menn áttuðu sig á mikilvægi trúverðugleikans og endanleikans þegar stjórnvöld kynna áform.