149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[21:08]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir ágæta ræðu. Þingmaðurinn nefndi tvær hugveitur. Önnur þeirra reyndi að hafa áhrif á kosningar með birtingu auglýsinga þar sem ráðist var eða unnið gegn stjórnvöldum. Hin var líklega eigandi að fyrrnefndri hugvekju. Mig langar bara að forvitnast hjá þingmanninum hvort hann hafi upplýsingar um eða hafi kannað hvert endanlegt eignarhald sé á þessum batteríum, þeim hugveitum sem þarna eru nefndar. Það er í það minnsta forvitnilegt að komast að því hvort að baki séu aðilar sem eru mjög tengdir, beintengdir, þeim miklu hagsmunum sem þarna eru, eða hvort þessir aðilar, þ.e. eigendur krónueigna, hafi einfaldlega keypt sér þjónustu hjá þessum hugveitum. En þetta var nú svona meira af forvitni.

Ég er sammála hv. þingmanni um að það er alvarlegt þegar stjórnvöld segja eitt og gera annað. Það grefur klárlega undan trúverðugleika viðkomandi stjórnvalds og stjórnvalda. Við þekkjum það bara af sögunni að í hvert skipti sem menn segjast ætla að beita hörku eða vera sanngjarnari en gera það svo ekki, þá dvínar sú trú sem menn hafa á viðkomandi stjórnvaldi. Það sama á að sjálfsögðu við um stjórnmálamenn. Það sama gildir um þá.

Mig langar aðeins að biðja þingmanninn að velta fyrir sér áhrifunum af því að stjórnvöld standi ekki í lappirnar.

Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann, sem situr í fjárlaganefnd, hvort það sé ekki undarlegt að enginn forsvarsmaður þessa máls skuli koma hér upp og reyna að útskýra og svara þeim spurningum sem settar hafa verið fram um málið.