meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Hann nefndi áhættuna og fjárlagagerðina. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður man það, en ég velti því fyrir mér hvort þær breytingar sem hér er verið að gera hafi einhver áhrif á gildandi fjármálaáætlun eða geti haft áhrif inn í þá fjármálaáætlun sem kemur fljótlega. Af því að nú man ég hreinlega ekki hvað menn gerðu ráð fyrir að kæmi út úr útboðunum í þeirri áætlun sem í gildi er. Það hlýtur að hafa verið gert ráð fyrir einhverjum aurum þar. Þá veltir maður fyrir sér hvort hér sé farið eftir þeirri áætlun eða ekki. Þetta eru meira vangaveltur.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er eftirfarandi: Nú hefur verið farið ágætlega yfir, m.a. af hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, söguna og fréttir og fréttatilkynningar frá því 25. maí 2016, 30. maí 2016, 8. júní, 9. júní, 13. júní o.s.frv., þar sem rakið er hvernig Seðlabankinn hefur ítrekað gefið eftir eða gefið afslátt af þeirri áætlun sem lagt var af stað með í upphafi.
Hvað getur skýrt það? Hvers vegna var bankinn í júní 2016 byrjaður að hverfa algerlega frá því sem búið var að auglýsa og samþykkja í maí sama ár? Hvað er það sem gerir það að verkum að menn bogna svona í hnjánum á þessum tíma? Við höfum ekki séð nein rök fyrir þeirri breytingu eða þeirri þróun sem þarna varð, hvað þá að við höfum fengið rök eða fengið að heyra frá stuðningsmönnum þessa frumvarps, þeim sem leggja það fram í þessum sal, hvað það er sem gerir það að verkum að það þurfi að samþykkja hér.