meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Þetta er nefnilega mjög athyglisvert og ég þakka honum sérstaklega fyrir að koma með þetta fram. Þetta hefur ekki fengið nægilega athygli að mínu mati, hvernig stöðugt er verið að gefa eftir. Þetta er eitthvað sem þarf að fá á hreint fyrir nefndinni og fá þá aðila frá Seðlabankanum til að svara því hvað þeim gekk til þegar stöðugt var verið að gefa eftir. Þá var í raun og veru búið að falla frá upphaflegum áætlunum og svo hefur þetta allt saman áhrif á trúverðugleika okkar, sem skiptir verulegu máli í þessum efnum. Það hljóta að vera einhver rök þarna á bak við og það þarf að fá þau fram. Það er alveg klárt mál.
Ef ég kem aðeins nánar að fjárlagavinnunni, þá hef ég hvergi heyrt minnst á þetta í fjárlagavinnunni varðandi fjármálaáætlun og sérstaklega þegar farið var yfir þessa áhættuþætti. Þar var t.d. rætt sérstaklega um niðurstöðu varðandi álit umboðsmanns Alþingis um öryrkja og þá sem hafa búið erlendis, og að búið sé að reikna út rangt bætur til þeirra, það sé metið á einhverja 3 milljarða. Þetta er sérstaklega tekið fram sem áhætta, en svo horfum við á það að hér eru 84 milljarðar að fara úr landi. Er það engin áhætta gagnvart stöðu gjaldmiðilsins sem dæmi? Fyrir utan það að ef þessum upphaflegu áætlunum um gengi hefði verið fylgt þá erum við kannski að verða af 12 milljörðum og hvergi er rætt um þetta.
Mér finnst þetta mjög undarlegt og ég verð að segja það enn og aftur að ég er mjög hissa á að þeir sem sitja í fjárlaganefnd á vegum stjórnarflokkanna skuli ekki hafa tekið þátt í þessari umræðu og komið inn í hana hvað þetta varðar.