149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[21:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Hv. varaþingmaður Samfylkingarinnar, Einar Kárason, kom upp áðan og reyndi að eigin sögn að fá botn í það um hvað málið snýst. Honum er nokkur vorkunn að eiga erfitt með að átta sig á því, hann er ekki í efnahags- og viðskiptanefnd. Af því að ég gef mér að hann hafi fylgst með öllum umræðum sem fram hafa farið um málið þá er ekki miklu til að dreifa öðru en umræðum okkar í Miðflokknum sem hafa farið fram í dag. Þann 22. janúar var haldin ein ræða um málið. Það var framsöguræða hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar, sjö mínútna löng, engin andsvör, engar ræður. Það skýrist auðvitað af því ástandi sem var á þingi þann daginn. Það sem framkallaði þá undarlegu stemningu var að þá var talað m.a. um að gera breytingar á lögum þannig að þau giltu með afturvirkum hætti. Ástandið var meira en lítið skrýtið og var ein ræða hæstv. fjármálaráðherra, sjö mínútur, engar umræður.

Í byrjun umræðu í dag, kl. 15.03, var framsögumaður efnahags- og viðskiptanefndar, hv. þm. Óli Björn Kárason, með sína ræðu, sex mínútna langa, og gerði ekkert annað en að lesa upp greinargerð nefndarinnar. Ekki fáum við því skýringar um nokkurn skapaðan hlut í málinu, á því hvers vegna tímapressan er svona mikil, hver ætluð áhrif á gengi krónunnar eru og margt annað. Við erum algerlega í myrkrinu. Ef við skoðum frumvarpið sjálft er 2. kafli greinargerðarinnar, Tilefni og nauðsyn lagasetningar, ekkert annað en yfirferð, söguleg yfirferð yfir það hvernig þau mál hafa þróast. Það er ein knöpp málsgrein þar sem talað er um efnislega að þegar lög um meðferð krónueigna hafi verið sett hafi verið reiknað með því að þau hefðu takmarkaðan líftíma, sem er eðlilegasti hlutur. Það er öll nauðsyn lagasetningarinnar. Sú staðreynd, sem allir eru meðvitaðir um, setur enga tímapressu á þetta mál.

Málið er allt unnið og sett fram á þann hátt að það bendir til þess að menn vilji ekki ræða efnisatriði þess. Þetta er ótrúverðugt. Umræðan hefur verið í algeru skötulíki. Frá öllum fulltrúum stjórnarflokkanna hafa komið tvær ræður og allar aðrar ræður um málið hafa verið fluttar af þingmönnum Miðflokksins. Það hefur engin ræða verið haldin um þetta mál af öllum þingmönnum samfylkingarflokkanna, ekki ein, og þetta eru þeir hv. þingmenn sem vaða hér fram daginn út og daginn inn og saka stjórnvöld um að gefa frá sér skattpeninga hingað og þangað, að verið sé að gefa kvótaeigendum þetta og hátekjufólki hitt. Bunan stendur út úr þeim daginn út og daginn inn og síðan eru hérna alvörutölur til umræðu og þá segir enginn orð. Ég veit ekki hvort þau nenna ekki að setja sig inn í málið, hvort þeim þyki það ekki nógu merkilegt eða hvað.

Ef við skoðum aðeins samhengi hlutanna og upphæðirnar er um að ræða 610 milljónir evra. Með leyfi forseta segir á bls. 3 í frumvarpinu:

„Við gildistöku laga nr. 37/2016 voru aflandskrónueignir áætlaðar um 319 milljarðar kr. eða um 15% af vergri landsframleiðslu (VLF). Áætlað er að heildarfjárhæð aflandskrónueigna hafi 31. október 2018 numið um 84 milljörðum kr. eða um 3,1% af VLF.“

Þeir 84 milljarðar kr. í endaðan október samsvara 83 milljörðum í dag.

Þann 12. mars 2017 gerði Seðlabankinn samning upp á 90 milljarða við aflandskrónueigendur á genginu 137. Þann sama dag var gengi evrunnar 115 kr. Á þeim tíma hafa aflandskrónueigendur greinilega talið að yfirverð sem þeir teldu ásættanlegt væri 16,4%. Færa má rök fyrir því að það hafi verið verulega langt bakkað af fulltrúum okkar í hagsmunagæslunni þegar þar var komið, en alla vega eru 16,4% þau afföll sem aflandskrónueigendur tóku á sig í viðskiptunum 12. mars 2017.

Ef við yfirfærum þau 16,4% á 83 milljarða kr. sem um ræðir, þann síðasta stabba, eru það 13,6 milljarðar. Mér finnst þetta ótrúlegt mál, þar sem svona tölur eru undir. Ef við bara næðum fram þeim árangri sem varð eftir að menn höfðu bakkað og bakkað og bakkað hinn 12. mars 2017, ef bara gengismunurinn sem menn sættu sig við þá væri yfirfærður á 83 milljarða væru það 13,6 milljarðar, miðað við stabbann sem er verið að horfa til í dag. 13,6 milljarðar.

Nú bregður ræðumanni dálítið. Ég ætlaði að horfa á hæstv. fyrsta varaforseta Alþingis, Samfylkingarmanninn, en hann hefur stækkað dálítið síðan ég leit á hann síðast og er orðinn dökkhærður.

En þetta eru tölur sem eru þannig að það er ekkert annað að gera en að vísa málinu aftur til efnahags- og viðskiptanefndar á milli umræðna, eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndarmaður óskaði eftir fyrr í kvöld, svo að það sé nóterað hjá forseta, og taka málið upp og bakka frá þessari eftirgjöf. Frá slíkri stöðu er alveg sjálfsagt að bakka.

Ég skil ekki hvernig þingmenn, þingflokkar sem telja sig til þess bæra að gagnrýna menn og flokka fyrir að gefa frá sér skatttekjur, gefa frá sér réttindi ríkisins, af því að þeir hópar, samfylkingarflokkarnir, álíta allar skatttekjur vera eign ríkisins en ekki sjálfsaflafé fyrirtækja eða einstaklinga, hvernig þeir hópar sem tala gegnumgangandi um miklu lægri upphæðir en þessar sem stórkostlegar sjá ekki ástæðu til að halda eina einustu ræðu þegar 13,6 milljarðar eru undir bara miðað við hlutfallið, gengisafsláttinn í viðskiptum við aflandskrónueigendur 12. mars 2017.

Þetta eru alvörutölur. Mér finnst alveg með ólíkindum að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Óli Björn Kárason, komi ekki hérna og fari yfir það með okkur. Við erum svo sannarlega búin að reyna að fá fram svör: Í hverju liggur tímapressan? Hver eru ætluð áhrif á gengi? Af hverju í ósköpunum er verið að gera þetta yfir höfuð?

Hæstv. forseti. Það hefur enginn útskýrt það fyrir okkur, ekki nokkur maður. Síðast þegar menn ákváðu að henda 13,6 milljörðum frá sér þá fjandakornið orsakaði það einhverja umræðu. Er þetta af því menn nenna ekki að setja sig inn í málið? Það má vel vera, en þá er best að við stöndum hérna þangað til einhver sem er til þess bær að svara mætir á svæðið. Ég sé fyrirtaksþingmenn í hliðarsal sem gætu ábyggilega komið upp og útskýrt það fyrir okkur að einhverju marki, en ég er ekki viss um að þeir séu búnir að setja sig neitt inn í málið. Þetta er okkar besta fólk, fyrir utan okkur sem sitjum í salnum.

Ég vil ítreka að ég held að það sé ekkert annað í stöðunni en að senda málið aftur til nefndar, taka það upp, (Gripið fram í: Nefndin er búin að fjalla um þetta.) bakka frá eftirgjöfinni og standa í lappirnar. Það er alveg eðlilegt að láta ekki svona yfir sig ganga. Ég heyri úr hliðarsal að nefndin sé búin að fjalla um málið. Ég held að sá hv. þingmaður sem skaut því inn úr hliðarsal hafi ekki verið kominn þegar ég útlistaði allar ræður stjórnarmeirihlutans um málið. Þær eru tvær. Það er hæstv. fjármálaráðherra með framsöguræðu upp á sjö mínútur, þar sem engin andsvör voru eða ræður, og síðan framsögumaður nefndarinnar með sex mínútna ræðu sem hljóp úr sal um leið og hún var búin. Þetta er auðvitað ekki boðlegt.