149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[22:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það hefur mikið verið rætt um þetta útspil Seðlabankans, að vara við því að þetta frumvarp verði samþykkt ekki síðar en í gær. Og eins og ég spurði hv. þm. Bergþór Ólason um áðan: Má þá ekki gagnálykta sem svo að nú sé ekki lengur óhætt að samþykkja frumvarpið, að mati Seðlabankans. Seðlabankinn tekur það fram að ef þetta verður ekki klárað í gær hafi hann ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af því hvernig þetta komi út. Ef ekki, ef sú er ekki raunin, þá hlýtur maður að velta því fyrir sér hvort þetta hafi bara verið einhvers konar brella til að reyna að knýja á um að málinu yrði hleypt í gegn án mikillar umræðu. Það væri svo sem ekki í fyrsta skipti sem menn reyna að koma málum hratt í gegn með því að vísa til þess að klára þurfi þau einn, tveir og þrír eitthvert kvöldið til þess að róa markaðinn.

Það vill reyndar svo til að það var verið að rifja það upp fyrir okkur að þetta er ekki einu sinni í fyrsta skipti sem slík aðferð er reynd með þetta mál. 14. desember, síðasta dag þingsins í fyrra, var allt í einu tekið upp á því að reyna að lauma þessu máli inn, sem hafði ekkert verið á dagskrá. Og hvernig var það rökstutt af forseta Alþingis? Jú, við þyrftum að koma þessu inn til að róa markaðinn. Þannig að það er búið að reyna þessa brellu einu sinni áður. Og nú er bara spurningin: Er eitthvað að marka þetta mat Seðlabankans að ef samþykkja eigi þetta frumvarp eins og það er verði það að gerast í gær, eða var það einhvers konar brella? Við verðum að láta reyna á það í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, hitta bankastjóra Seðlabankans, seðlabankastjórann, og spyrja hann hvort taka eigi þessa athugasemd alvarlega. Augljóslega var málið ekki samþykkt í gær, það var ekki þingfundur í gær, það var ekki þingfundur á laugardaginn, það var ekki þingfundur á föstudaginn síðasta, (Forseti hringir.) og þar af leiðandi var, að mati Seðlabankans, orðið of seint að samþykkja málið.