meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég hef nú kannski ekki alveg svar við þessu, en hins vegar rifjast upp fyrir mér að menn lögðu svo mikið á sig til að komast í mjúkinn hjá vogunarsjóðum hér aðeins fyrr á öldinni að til stóð að gera einn þeirra að landstjóra á Grikklandi fyrir vel unnin störf. Kannski er þetta bara angi af því að menn vilja fá upphefð úr þessum kreðsum, að menn vilja fá klapp á bakið frá vogunarsjóðum og peningaöflum úti í heimi sem vilja reyna að klekkja á Íslendingum. Ég kann ekki á það. En það gefst kannski tækifæri til þess seinna, í ræðum hér á eftir, að fara aðeins í gegnum það að engum manni er hollt að taka hagsmuni utan úr heimi fram yfir hagsmuni síns eigin heimalands. Menn ættu kannski að hafa það í huga að þetta mál er til þess fallið að (Forseti hringir.) veikja þjóðfélagið. Það er til þess fallið að veikja gjaldmiðil, til að veikja lífskjör, þannig að (Forseti hringir.) menn ættu kannski aðeins að hugsa sig betur um.