meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég skal leitast við það að tala íslensku í þessari ræðu. Nú muna menn á mínum aldri kannski ekki svo glöggt það sem hefur gerst alveg rétt áður, en ég man ekki eftir því í fljótu bragði að reynt hafi verið að henda einhverjum svona fýlubombum í gegnum þingið á þessum árum, 2013–2016. Þá var náttúrlega verið að fjalla um þessi mál, sem hér eru eftirhreytur af, þá var verið að tala um stóru myndina og hvernig ætti að leysa þetta risavaxna mál sem þá lá fyrir. Menn fengu nóg tækifæri til þess að ræða það hér í þingsölum.
Og ég segi aftur, eins og ég sagði í ræðu minni áðan: Ef það er svo að þessi hópur sem hér er í þingsal, því hér er ekkert nema Miðflokksfólk, ef við höfum svona gjörsamlega rangt fyrir okkur, af hverju mæta þá ekki fulltrúar hinna flokkanna og segja okkur það í svo mörgum orðum að við höfum rangt fyrir okkur, að við séum á villigötum, að við vitum nákvæmlega ekkert um hvað við erum að tala? Af hverju kemur þetta fólk ekki að segja okkur það? Við erum alveg tilbúin í að taka þann slag, þá umræðu.
Ég segi aftur við hv. þingmann: Ég man ekki eftir því í fljótu bragði að menn hafi reynt að koma einhverjum svona málum eins og ofan í skjóðu kerlingarinnar og kasta síðan inn fyrir gullna hliðið. Ég man eftir einhverju einu reyndar aðeins fyrr á haustinu sem kom náttúrlega líka frá ríkisstjórninni, sem var eitthvað óþægilegt, en nú man ég ekki alveg í svipinn hvað það var, en það var komið í veg fyrir það líka þá. Við erum náttúrlega kosin á þing til að gæta hagsmuna þjóðarinnar. Við erum að vinna fyrir þjóðina. Við erum hérna ekki fyrir okkur þannig að þegar við sjáum mistök í uppsiglingu þá ber okkur skylda til að benda á þau.