meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir prýðisræðu. Hann fór vel yfir hlutina og lyfti þessu plaggi í upphafi ræðu sinnar, sem var útgefið 2015, um losun fjármagnshafta. Svo þegar vindar blésu úr annarri átt um vorið 2016 vék þáverandi forsætisráðherra, hv. þingmaður í dag, Sigmundur Davíð Oddsson, úr sæti forsætisráðherra … Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. [Hlátur í þingsal.] — Hann gæti átt bróður, sko. (Gripið fram í.)
Hann vék þá til sinna manna með þeim orðum að haldið yrði áfram í þessari vegferð, sem svo var ekki gert því að strax um sumarið var tekin U-beygja, eins og menn hafa sagt.
Mér dettur í hug að spyrja þingmanninn, af því að nú er við völd ríkisstjórn sem við höfum oft kallað ríkisstjórn hinna breiðu skírskotana, þar sem viðnámið er ekki mikið og menn halda fast í stólana sína: Getur verið að fjármagnsöflunum gangi betur að sannfæra þau stjórnvöld sem eru við lýði í dag um að gera það sem fjármagnsöflunum hentar en var á þeim tíma?