meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Við erum hér þjóðkjörnir fulltrúar íslensku þjóðarinnar og skyldur okkar eru við íslenska þjóð en ekki einhver jakkaföt mælandi á útlensku. Við hljótum, þegar svona stórt mál er uppi, að grípa til allra þeirra varna í þágu þjóðarinnar sem okkur er unnt að gera. Það höfum við leitast við að gera í dag og í kvöld.
Ég tek undir með hv. þingmönnum sem hér hafa látið orð falla um að það hefði verið mjög æskilegt ef þingmenn, til að mynda úr stjórnarliðinu og ekki síður úr stjórnarandstöðunni, hefðu gert grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls, svo stórt sem það er, svo þýðingarmikið sem það er og svo miklir fjárhagslegir hagsmunir sem liggja þarna undir og reyndar efnahagslegir hagsmunir. Ég minni á að ekki liggur fyrir neitt tölulegt mat á hugsanlegum áhrifum á gengi krónunnar vegna þessara aðgerða.