149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[22:49]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hér fyrr í kvöld benti hv. þingmaður á það að í frumvarpinu sjálfu, í skýringum með því á bls. 8, kafla 6.3 um áhrif á Seðlabankann og gjaldeyrismarkað, er ekki lagt neitt tölulegt mat á áhrifin á gengi krónunnar ef þetta verður að veruleika. Í frumvarpinu og skýringum kemur fram að það hafi verið samráð við Seðlabankann og forsætisráðuneytið. Það koma hins vegar hvergi fram nein viðvörunarorð af hálfu Seðlabankans í frumvarpinu eða fylgigögnum og nú veltir maður fyrir sér hvort þau hafi ekki komið eða hvort það sé bara ekki fjallað um þau, við skulum ekkert útiloka það. Hins vegar eru viðvaranir í nefndarálitinu úr einhverri umsögn Seðlabankans. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Að öðrum kosti muni umfang aflandskrónueigna í lausu fé aukast um nær 70% eða sem nemur um 25 milljörðum kr.“

Svo kemur að við þetta aukist hætta, það sé eitthvað hættulegt við þetta.

Þessir 25 milljarðar kr., sem samkvæmt þessu geta sett allt á annan endann, er ekkert svo ólík upphæð því sem við höfum verið að tala hér um og er verið að gefa eftir hreinlega til þessara eigenda aflandskróna. Vegna þess að það hentar í nefndarálitinu er þetta gert að einhvers konar stórhættu, að þetta lausafé aukist um 70% eða 25 milljarða en mönnum finnst hins vegar ekkert mál, virðist vera, að gefa eftir svipaða upphæð með þessu verði sem virðist eiga að vera á þessum krónueignum. Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í þetta og biðja hann að fara yfir það og einnig hvort það sé ekki í rauninni grunnforsenda til að geta lagt mat á áhrifin á gjaldeyrismarkað og gengið og annað að einhverjum tölulegum upplýsingum sé skilað.