149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[23:29]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Það var upphaflegt markmið að aflandskrónueigendur greiddu sérstakt álag á þeim tímapunkti sem þeir myndu losna úr þessum höftum, þegar íslenska ríkið hleypti þeim út úr höftunum áttu þeir að greiða framlag til íslensks samfélags. Og með frumvarpinu er verið að gefa það eftir, gefa eftir markmiðið um þetta framlag þannig að þessir fjármagnseigendur tækju þátt í að endurreisa íslenskt samfélag. Það var upphaflega hugmyndin og að þeir greiddu líka hærra verð fyrir þann gjaldeyri sem þeir fengju að losa út úr landinu.