149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[23:30]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu sem hann flutti hér áðan. Honum varð tíðrætt um íslenska hagsmuni sem ég get tekið fyllilega undir. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður hefur hugsað þessi mál á svipaðan hátt og ég, þ.e. hvernig á því stendur að stjórnmálaöfl sem kenna sig við baráttu fyrir alþýðu þessa lands geta hugsað sér að taka hagsmuni vogunarsjóða fram yfir hagsmuni Íslendinga. Ég spyr hvort hv. þingmaður hafi myndað sér skoðun á því hver geti verið skýringin á þessu, þ.e. að flokkar og stjórnmálamenn, sem tala um það á tyllidögum að verkamaðurinn sé verður launanna, svo að vitnað sé í helga bók, þá nær það ekkert út fyrir tyllidagana. Þegar í harðbakkann slær þá taka þessir sömu flokkar afstöðu með vogunarsjóðum, með alþjóðlegum fjármálafyrirtækjum, með því sem einu sinni var kallað 1. maí auðvaldið. Þessir flokkar taka sem sagt afstöðu með þessum hópi gegn alþýðu landsins, með frumvarpinu sem við fjöllum um hér, sem gengur út á að rýra möguleika Íslendinga til að nýta þá fjármuni sem þeir raunverulega eiga.

Þær spurningar komu fram hér áðan að þetta sama fólk, þessi sömu stjórnmálaöfl, væri reiðubúið til að fórna í þessu tilfelli rúmlega 20 milljörðum en eiga hins vegar ekki til örfáa milljarða til að laga helstu ágalla þjóðfélagsins fyrir þá sem tæpast og verst standa.