meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Frú forseti. Forseti kallar hér eftir meiri ágreiningi og ég skal gera mitt besta. Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson gerir mál úr því að undanhaldið, eins og hann metur það hjá Seðlabankanum, hafi í rauninni byrjað á afmælisdegi hans 9. júní 2016. Gott og vel. Það má segja að þá sé ákveðinn upphafspunktur í þessu. En mér finnst hv. þingmaður skauta býsna létt fram hjá þeim atburði sem varð þegar Seðlabankinn tilkynnir um að hann og stjórnvöld hafi gert samning upp á 90 milljarða kr. við eigendur aflandskróna á genginu 137,5 kr. Hvenær gerist þetta, frú forseti? Á afmælisdeginum mínum, 12. mars. Við þurfum að skoða þessa hluti alla í samhengi. Það má reyndar fylgja sögunni að þetta var ekki alslæmur dagur því að sama dag var höftum að nokkru létt af almenningi sem átti reyndar að gerast áður en að farið væri að hleypa aflandskrónueigendum út. Kannski var þetta látið fljóta með gagnvart almenningi til þess að menn gerðu þá minna mál úr því að verið væri að fara gegn þeirri prinsippreglu að fyrst ætti að losa almenning og svo aflandskrónueigendur.
En það var fleira merkilegt sem gerðist 12. mars, t.d. sleit Ísland þá viðræðunum við Evrópusambandið árið 2015. Ætlar hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson að andmæla því að viðræðuslitin við Evrópusambandið hafi í raun leikið lykilhlutverk í því að styrkja samningsstöðu Íslands? Ekki hvað síst vegna þess að þá gátu þeir, sem höfðu ekki hugsað um neitt annað en að komast í Evrópusambandið og vildu gleðja alla mögulega útlendinga (Forseti hringir.) til að auka líkurnar á að komast þar inn, farið að einbeita sér aðeins betur að því að sætta sig við það að Íslendingar ætluðu að standa vörð um eigin hagsmuni.