meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Til að setja spurningu mína í samhengi ætla ég að reyna að ramma inn þá hagsmuni sem um er að ræða í dag. Miðað við 190 kr. gengið sem var uppleggið 2015, sem útgönguviðmið aflandskrónueigenda, ef við notum það sem núllpunkt hvað hagsmunina varðar og neðri mörkin séu 16,4%, afföllin sem aflandskrónueigendur sömdu um 12. mars 2017, þeir samningar upp á 90 milljarða sem er svipuð tala og nú um ræðir, þá liggja hagsmunirnir sem ríkissjóður hefur eftir með einum eða öðrum hætti, miðað við uppleggið sem lagt var af stað með 2015, á bilinu 13,6 milljarðar til 23 milljarðar.
Mig langar að spyrja hv. þingmann. Staðan er sú að tveir stjórnarliðar hafa látið svo lítið að halda ræðu um þetta mál, fjármálaráðherra í 1. umr. og framsögumaður nefndarinnar, hv. þm. Óli Björn Kárason, í 2. umr. Samanlagt töluðu þeir í 13 mínútur, hæstv. fjármálaráðherra í sjö og framsögumaðurinn í sex.
Getur þingmaðurinn með alla sína þingreynslu látið sér detta í huga eitthvert mál þar sem viðlíka hagsmunir eru undir fyrir ríkissjóð, 13,6–23 milljarðar, og þar sem virðist sem stjórnarflokkarnir séu að taka þátt í einhvers lags Íslandsmeistaramót í þagnarbindindi? (Forseti hringir.) Það er eins og eigi ekki að ræða þetta risahagsmunamál. Kannast þingmaðurinn við eitthvað viðlíka á þingferli sínum?