meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Virðulegur forseti. Komið hefur fram að um þetta mál hafi verið haldnir þrír nefndarfundir. Einhvern tímann hefði verið ástæða til að gefa svo stóru máli meiri tíma. Nefndarálitið ber þess að sjálfsögðu merki að um það hefur lítið verið fjallað.
Í nefndarálitinu er, eins og oft, innleiðing og kynning á málinu. Síðan er í rauninni bara talað um hvað Seðlabankanum finnst í því öllu saman. Ekki er reynt að kryfja eða benda á einhverjar hættur í málinu eða útskýra hvers vegna þurfi að gera hlutina á þennan hátt o.s.frv. Það er voða lítið í nefndarálitinu lýsandi fyrir málið og þar af leiðandi erum við litlu nær. Enn og aftur man maður varla eftir því að svo stórt mál hafi fengið slíka meðferð. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að vera settur á mælendaskrá.