149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[00:13]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Svo ég haldi áfram með það sem frá var horfið þá gerði Seðlabanki Íslands samkomulag í byrjun árs 2017 við eigendur aflandskróna sem háðar voru þessum sömu takmörkunum og ég ræddi í fyrri ræðu í dag, eða lög nr. 37/2016. Í samkomulaginu fólst að Seðlabankinn keypti af þeim aflandskrónueignir að fjárhæð um 90 milljarða kr. á genginu 137,5 kr. á evru. Aflandskrónueigendum sem ekki höfðu gert samkomulag við bankann var boðið að gera sams konar samninga á næstu tveimur vikum.

Þarna erum við komin í 137,5 kr. Í upphafi var byrjað á 190 kr. plús. Það er gott að halda því til haga því að ekki hefði átt að hnika frá því.

Í fréttum mátti lesa að þáverandi fjármálaráðherra tók ekki undir áhyggjur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem þá gagnrýndi þennan afslátt, sagði þetta gjöf til vogunarsjóða þó að hann hafi fagnað því að verið væri að lyfta höftunum. Aflandskrónuútboð Seðlabanka Íslands gekk gegn áætlun um afnám hafta sem kynnt var fyrri part árs 2016. Útboðið var allt of seint á ferðinni. Það átti jú að halda það þegar þrýstingur var hvað mestur og ekki átti að gefa eftir með 190 kr. fyrir hverja evru.

Þetta snýst jú um trúverðugleika stjórnvalda. Þetta snýst um fjárhagslegan kostnað og þetta snýst um orðstír landsins. Það er merkilegt að hugsa til þess að fjármálaráðherra hafi snúist eins og hann gerði. Hann hafði engar áhyggjur. Hann heldur því meira að segja fram í dag að verið sé að fara eftir planinu sem sett var 2015 þegar öllu hefur verið snúið á hvolf. Ég velti fyrir mér: Á hvað munu aflandskrónur fara núna? Ég ítreka þá staðreynd að í upphafi var hugsunin sú að gæta að hagsmunum Íslands enda frumskylda stjórnvalda að verja þjóðarhagsmuni. Planið var að allir lausir endar væru hnýttir og fullkomið jafnvægi væri milli hagsmuna þjóðarinnar og aðgerða stjórnvalda gagnvart aflandskrónum — mig langar að segja aflandskónum.

Í hvaða brýnu mál hefði verið hægt að nýta fjármunina? Alls staðar er ákall um aukið fjármagn. Við vitum að auka þarf fjármagn til löggæslu og sérstaklega sem sýnilega löggæslu. Það vantar hjúkrunarrými um allt land og rétt fyrir áramót var gerð skýrsla sem sagði okkur að fjöldi hjúkrunarrýma á landinu öllu væru um 2.700 en það vantar samt sem áður 270 hjúkrunarrými viðbót við þau hjúkrunarrými sem ákveðið hefur verið að setja í stand.

Það hefur einnig komið fram að bæta þurfi eða endurbyggja allt að 400 hjúkrunarrými til að mæta kröfum um bættan aðbúnað og það kostar töluvert að fara í þann leiðangur. Það má beinlínis halda því fram að núverandi fyrirkomulag geri lítið úr öllu því sem hægt er að gera. Við getum nefnt krónu á móti krónu skerðingu og núverandi fyrirkomulag gerir lítið úr vinnu fólks sem vill og getur lagt sitt af mörkum. Það þarf ekki að bíða eftir þeirri kerfisbreytingu sem svo oft er talað um.

Það er líka hægt að minnast á að hægt væri að nota fjármunina til að lagfæra flugvelli. Þeir eru margir hverjir orðnir lélegir og standast varla gæðakröfur. Í athugasemdum Icelandair og Isavia vegna samgönguáætlunar Alþingis, fyrir árin 2019–2023, lögðu báðir aðilar áherslu á uppbyggingu innviða flugsamgangna á landsbyggðinni, sögðu að meira rými fyrir flugvélar, viðhald og uppbyggingu vantaði í kringum alþjóðlega flugvelli á landsbyggðinni, sem eru jú nýttir sem varaflugvellir. Þannig að það eru næg verkefni þó að ég hafi aðeins tæpt á örfáum.