149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[00:22]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Mjög litlu nær, það er nú málið. Ég hugsa að það hefði verið hægt að einfalda jafnvel þessa umræðu ef þeir sem bera ábyrgð á þessu máli og vilja fá það í gegn hefðu tekið þátt í umræðunni og svarað fyrirspurnum okkar eða í það minnsta reynt að telja okkur trú um að þetta mál væri þess eðlis að það væri eðlilegt og sanngjarnt að hleypa því í gegn á mikilli hraðferð. Ég segi hiklaust hraðferð. Þó að þetta hafi verið tekið fyrir á einhverjum þremur fundum í efnahags- og viðskiptanefnd þá er það að sjálfsögðu ekki mikið um mál sem eru af þessari stærðargráðu. Enda ber nefndarálitið þess merki. Í frumvarpinu sjálfu eru tímasetningarnar ekkert rökstuddar sérstaklega. Það er bara fjallað um þessar breytingar, það er verið að liðka til og gera þeim sem eiga þetta fjármagn auðveldara fyrir með því að losa það og það getur í sjálfu sér verið ákveðið markmið. Það er hins vegar markmið sem ég held að við séum öll búin að fara ágætlega yfir að sé andstætt heildarhagsmunum þar sem hefði verið betra að halda sig við fyrra plan og beita, hvað þetta var kallað, gulrót og kylfu, þannig að það væri ljóst að ekki yrði gefið eftir.

Það er hins vegar alveg klárt mál að það er alltaf erfitt að snúa til baka þegar maður hefur hafið undanhaldið. Þegar herfylkið er farið að hörfa og sá sem er andstæðingurinn sækir og sækir er mjög erfitt að finna sér stöðu þannig að menn komist til baka í sóknarhug. Eflaust er hægt að nefna dæmi þar sem það hefur tekist en það eru líka mörg sorgleg dæmi úr styrjöldum (Forseti hringir.) þar sem menn komast í sjálfheldu og þurftu að bjarga sér jafnvel á fiskibátum sem sendir voru frá Bretlandi.