149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[00:27]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Mér hafa ekki enst tvær ræður til að fara í gegnum undanhald stjórnvalda og Seðlabankans, sem er eingöngu byggt á fréttatilkynningum Seðlabankans sjálfs. En þegar ég hef loksins náð að klára það er auðvitað eitt og annað til viðbótar sem ræða þarf er tengist þessu stóra máli, sem þeir sem fyrir því standa vilja helst ræða sem minnst um, væntanlega vegna þess að þá skortir svör við þeim spurningum og athugasemdum sem við höfum varpað hér fram.

Í ársbyrjun 2017 gerði Seðlabankinn grein fyrir viðskiptum sem hefðu átt sér stað með aflandskrónur á árinu 2016. Þar birtist yfirlit um hvernig aflandskrónustabbinn svokallaði, sem var í upphafi 319 milljarðar kr., hefði lækkað með ítrekuðum útboðum eða uppboðum bankans á gjaldeyri og um leið, eins og ég hef rakið hér að framan, ítrekaðri eftirgjöf gagnvart eigendum aflandskróna. Það var algjörlega í ósamræmi við og gekk í rauninni þvert gegn upplegginu eins og það var kynnt árið 2015 þar sem var talað um eina heildaraðgerð til að klára málið, aðgerð sem fara átti fram í október á árinu 2015.

En þegar komið er fram í mars 2017 gerist það, eins og ég nefndi reyndar áðan í andsvari, að Seðlabanki Íslands tilkynnir um að stjórnvöld hafi gert sérstakt samkomulag við aflandskrónueigendur utan allra uppboða. Þannig að það var ekki nóg með að stöðugt væri verið að færa línuna í uppboðunum og halda ný uppboð og veita lengri fresti og bjóðast svo til að selja gjaldeyri á tilteknum verðum utan uppboða, heldur er hér tilkynnt um sérstakt samkomulag upp á 90 milljarða kr. eftir viðræður fulltrúa íslenskra stjórnvalda við eigendur þessara aflandskróna. Og á hvaða gengi skyldu þessi viðskipti hafa átt sér stað? 137,5 kr. á evruna.

Þá er við hæfi að fletta eina blaðsíðu til baka og rifja upp síðustu viðskiptin á árinu 2016, en þau voru á viðmiðunargenginu 220 kr. á evra, 1. nóvember 2016.

Svo gera stjórnvöld sérstakt samkomulag á allt öðrum og miklu betri kjörum við aðila sem ekki höfðu fengist til að taka þátt í útboðunum, höfðu ekki viljað spila með. Það gekk að sjálfsögðu algerlega gegn því sem lagt var upp með þegar heildarplanið var kynnt. Líður aðeins á mars og 23. þess mánaðar er upplýst um fyrirhuguð kaup Seðlabanka Íslands á aflandskrónum. Þar býður hann öðrum, sem ekki höfðu verið reiðubúnir til þátttöku í uppboðunum, að kaupa krónur á þessu sama verði og ítrekar það svo í byrjun apríl, 4. apríl, að mönnum bjóðist áfram að kaupa evrur af Seðlabankanum á 137,5 kr.

Þegar komið er fram í júní á árinu 2017 er send út tilkynning þar sem kemur fram að í tvígang sé búið að framlengja frestinn til að kaupa evrur á þessu verði. Þá eru 137,5 kr. náttúrlega ekki lengur nógu gott verð, ekki frekar en 190 kr. höfðu verið nógu gott verð á sínum tíma, vegna þess að menn eru búnir að átta sig á því að því lengur sem þeir bíða, því lengur sem þeir halda út, þeim mun betra verðs (Forseti hringir.) geti þeir vænst.

Virðulegur forseti. Ósköp er tíminn fljótur að líða. Ég verð að biðja forseta að skrá mig aftur á mælendaskrá svo ég geti klárað þessa yfirferð.