149. löggjafarþing — 70. fundur, 27. feb. 2019.
meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
486. mál
Forseti. Já, ég verð nú bara að leyfa mér að gerast svolítið bjartsýnn. Hér eru þrír stjórnarmeðlimir komnir í salinn og mér hafa aldrei leiðst næturróðrar. Ég get alveg vakað heila nótt til að fá útskýringu á þessu. Það þótti ekki tiltökumál hér í gamla daga, þegar maður var ungur og hress, að vaka eina vetrarvertíð. Ein nótt skiptir ekki sköpum ef hægt er að varpa ljósi á þetta mál og vænti ég þess að við höldum þessu bara áfram fram á nótt.