meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Hér fyrr í dag í þessum umræðum vitnaði ég í ummæli sem íslenskur lögmaður og þáverandi hagsmunagæslumaður vogunarsjóðanna á Íslandi lét hafa eftir sér í bandaríska stórblaðinu Financial Times árið 2016. Í frétt Financial Times kom fram að von fjárfestingarsjóðanna sem eiga aflandskrónur hafi verið sú að hægt hefði verið að endursemja um lausn þessara krónueigna við nýja ríkisstjórn að því gefnu að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, hefði ekki átt aðild að nýrri ríkisstjórn. Þetta viðtal sýndi enn og aftur það tak sem erlendir fjármagnseigendur höfðu á þjóðfélaginu og hvernig þeir óttuðust staðfestu forsætisráðherrans og ríkisstjórnar hans.
Annað verður sagt um þjónkun vinstri stjórnarinnar gagnvart vogunarsjóðunum sem þá fitnuðu eins og púkinn á fjósbitanum af óförum íslenskra heimila. Engin viðspyrna var við þá aðila þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þá þingmaður, kom með hugmyndir sínar um gjaldtöku á vogunarsjóðina. Rétt er að rifja upp að allir stjórnmálaflokkar landsins töldu þær hugmyndir óráðsíu en vildu síðan allir Lilju kveðið hafa.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar leysti einstaklega vel úr því erfiða og stóra máli kröfuhafa bankanna. Sett voru skýr markmið, sýnd var mikil staðfesta og ekkert gefið eftir. Niðurstaðan varð sú að kröfuhafarnir borguðu háar fjárhæðir til að fá að nálgast erlendar eignir sínar. Þeir m.a. færðu ríkissjóði Íslandsbanka, svo það sé nefnt. Ég held að með tíð og tíma verði litið á aðgerðir ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnvart kröfuhöfunum sem eina af best heppnuðu aðgerðum í íslenskri stjórnmála- og efnahagssögu.
Það þarf samt að muna hvers vegna stjórnvöld voru svona hörð við kröfuhafana. Það er mjög mikilvægt, sérstaklega í þeirri umræðu sem við höfum verið í í dag. Það einfaldlega gekk ekki upp fyrir íslenskt hagkerfi að hleypa þeim með innlendar eignir úr landi, greiðslujöfnuðurinn hefði endað í molum og krónan líklega hrunið aftur.
Nú stöndum við frammi fyrir þeirri óvissu hvaða áhrif þetta frumvarp, verði það að lögum, kemur til með að hafa á gengi krónunnar. Þetta er mjög mikilvæg spurning sem við höfum rætt svolítið en er nauðsynlegt að fá svör við af hálfu nefndarinnar, að kallaðir verði fyrir nefndina sérfræðingar á því sviði, sérfræðingar á sviði efnahagsmála og gjaldeyrismála og sérfræðingar frá Seðlabankanum, sem geta svarað því umbúðalaust hvaða áhrif frumvarpið mun hafa á stöðu krónunnar verði það að lögum.
Ósamræmi er í því sem fram kemur í frumvarpinu um hvort menn telji að það komi til með að hafa áhrif eða ekki. Mér finnst enginn rökstuðningur á bak við þá fullyrðingu í greinargerð frumvarpsins að frumvarpið, verði það að lögum, komi ekki til með að hafa nein áhrif á ríkissjóð. Það held ég að sé mjög stór og mikil staðhæfing án þess að í raun sé nokkur rökstuðningur þar á bak við. Við sjáum að það verður breyting á gengi krónunnar og þá mun það hafa áhrif á ríkissjóð. Það er t.d. ekki tekið tillit til þessa í áhættumati við gerð fjárlaga. Ég held að mjög mikilvægt sé, herra forseti, að fram komi af hálfu nefndarinnar hver áhrifin gætu orðið á gengi krónunnar.