149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[01:31]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna og hún er afar mikilvæg. Ég held að þetta sé grundvallarforsenda fyrir því að hægt sé að taka ákvarðanir í þessu máli, að það liggi algerlega fyrir hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa á efnahagslífið. Við erum, eins og við þekkjum, að ganga inn í niðursveiflu. Það er óvissa í efnahagsmálum, kjarasamningar eru lausir. Viðræðum hefur verið slitið og það stefnir í verkföll.

Ef það gerist í ofanálag að gengið fellur, lán landsmanna, húsnæðislán og önnur lán hækka og verðbólgan fer af stað sjáum við alvarleika málsins. Að koma með þetta mál akkúrat á þessum tímapunkti finnst mér með ólíkindum vegna þess að óvissan er svo mikil. Og svo er fullyrt í greinargerð með frumvarpinu að þetta komi ekki til með að hafa nein áhrif á stöðu krónunnar.

Við erum að tala um 84 milljarða sem eiga að fara héðan út í erlendum gjaldeyri. Ég held að það sjái það allir að það kemur til með að hafa áhrif. Þarna er sagt að Seðlabankinn ætli að grípa til sinna ráða hvað þetta varðar til að verja krónuna en það kostar heilmikla peninga. Á endanum er það almenningur í landinu sem kemur til með að greiða það. Frá mínum bæjardyrum séð er algerlega nauðsynlegt að við fáum þetta á hreint og að fyrir nefndina komi sérfræðingar sem geta svarað þessu. Það er mjög undarlegt að þetta skuli ekki vera rökstutt með neinum hætti í frumvarpinu.