meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er einmitt alveg sláandi að þetta bar árangur. Það versta við þetta allt saman er að síðan á að semja við þessa aðila. Það á að gefa eftir. Þeir eiga að fá að njóta betri kjara en þeir sem þó tóku þátt og spiluðu með frá upphafi með stjórnvöldum. Núna á hins vegar að verðlauna í raun og veru þessa aðila fyrir að hafa komið svona fram.
Þetta byrjaði á netinu eins og hv. þingmaður nefndi og það komu fram færslur á Twitter. Þetta er nákvæmlega sama aðferðafræðin og hefur verið notuð í öðrum ríkjum, þá sérstaklega af Rússum, það er áróður á netinu gagnvart sitjandi stjórnvöldum og reynt að hafa áhrif á kosningar. Það er nákvæmlega það sem gerist hér nema á Íslandi þá gerðist þetta allt fyrir opnum tjöldum. Hver voru viðbrögð íslenskra stjórnvalda? Jú, vogunarsjóðirnir og þeir sem stóðu að þessu stóðu uppi sem sigurvegarar vegna þess að þeir höfðu það í gegn sem þeir stefndu að, því miður.