meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni mjög vel fyrir þá ræðu sem hann flutti hér. Ég verð að viðurkenna að hugur minn leitar svolítið aftur til ársins 2013 þegar hér stóð til að gera sambærilegar breytingar á veiðigjaldainnheimtu og gerð var núna í haust. Þá höfðu ýmsir þingmenn sig mjög í frammi, sérstaklega þingmenn Vinstri grænna, töluðu af mikilli ákefð og hneykslan um að menn væru að afsala sér tekjum sem ríkissjóður ætti.
Nokkrum árum síðar kemur þetta sama fólk og leggur hér fram frumvarp sem virðist verða til þess að íslenska ríkið, þ.e. þjóðin, verði af rúmlega 13–23 milljarða kr. tekjum. Ég velti því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum þessi gríðarlegu sinnaskipti hafi orðið í þeim hópi, því að þarna erum við sannarlega að tala um hagsmuni sem hægt er að verja. Við erum að tala um hagsmuni sem varða afkomu t.d. fyrirtækja á Íslandi, þetta eru hagsmunir sem varða fyrst og fremst það að íslenska ríkið eða þjóðin fær meira, sem nemur þessari upphæð, fyrir þá eign sem hún á eða heldur á.
Ég velti því þess vegna fyrir mér hvort hv. þingmaður er jafn skilningsvana og ég gagnvart því að menn skuli koma fram eftir öll þessi ár og virðast ekki hafa nokkurn einasta áhuga á því að hámarka hagsmuni og afkomu þjóðarinnar vegna þessa máls, heldur virðist þeim bara vera slétt sama um að allir þessir milljarðar renni í vasa vogunarsjóða en ekki ríkissjóðs.