meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað hárrétt hjá hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Ef við tökum bara aftur dæmið sem tekið var hér áðan um það hversu miklum samgöngubótum fjárhæð sem þessi gæti skilað, þá eru það auðvitað fjárfestingar sem skila sér inn í hið innlenda kerfi með verkefnum fyrir verktaka, virðisauka og margs konar skatttekjum sem af slíku hljótast, fyrir utan alla framlegðina sem felst í því að fá betra samgöngukerfi, bætt flæði og öryggi. Ég leyfi mér að segja að það sé himinn og haf á milli þess að bera saman upphæð sem annaðhvort fer úr landi samanborið við sömu upphæð sem fer í fjárfestingu innan lands. Það er tvennu ólíku saman að jafna.
En þetta er góður punktur sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom inn á. Ég hef auðvitað verið allt of lítill í mér hvað það varðar að horfa til þessarar tölu upp á 13,6 milljarða, sem er reiknuð út frá afföllum sem krónueigendur sættu sig við þegar þeir voru búnir að svínbeygja Seðlabankann. En mér fannst ég þurfa að búa til einhverja tölu til að mynda gólf í því samtali sem við áttum hérna og 190 kr. voru auðvitað hugsaðar sem besta niðurstaða fyrir þá sem spiluðu með.
Þann 1. nóvember 2016 er verið að eiga þessi viðskipti á 220 kr. á evru og það eru 15 milljarðar sem fara í gegnum kerfið þannig. Það er alveg klárt að tölur sem eru mun óhagstæðari aflandskrónueigendunum en 190 kr. viðmiðið hafa verið raungerðar (Forseti hringir.) og það í upphæðum sem ná alveg máli.