149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[02:55]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Forseti. Jú, svo sannarlega, en þessir Íslendingar voru hins vegar ekki, eins og kemur fram í fyrrnefndri grein, markhópur þessarar aðferðar í upphafi heldur var markhópurinn skilgreindur þannig, með leyfi forseta: „Erlendir aðilar sem hafa áform um fjárfestingu í íslensku atvinnulífi og vilja kaupa aflandskrónur til að auka arðsemi hennar“, en aðferðin var svo nýtt í mjög stórum stíl í ýmiss konar fjárfestingar. Tökum bara sem dæmi grein sem var mjög vaxandi á þessum tíma, ferðaþjónustu. Í hvaða stöðu eru menn ef þeir þurfa að taka lán, eins dýrt og það er nú á Íslandi, til að byggja hótel, en keppa svo við aðila sem byggir sams konar hótel fyrir krónur sem hann fékk að kaupa á afslætti? Það er mjög erfitt að keppa við slíkt þegar upphafspunkturinn (Forseti hringir.) í rekstrinum er svo ólíkur.