meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Ég mun rekja þetta nánar í einni af seinni ræðum mínum í kvöld en ætla þó að leitast við að svara stuttlega að sinni spurningum hv. þingmanns.
Það blasir í rauninni við og er jafnvel nokkurn veginn viðurkennt í því sem hv. þingmaður las hér upp, að menn hafi einfaldlega metið það sem svo að stjórnvöld myndu ekki standa við það sem þau höfðu sagt, treystu sér ekki til að klára málið á þann hátt sem þau hefðu boðað og þar af leiðandi væri það valkostur að bíða eftir því að losna einfaldlega úr höftum á hagstæðara gengi. Þess vegna gerist það að stjórnvöld eru sjálf stöðugt að bjóða sig niður, jafnvel eftir að þau eru komin, eins og hv. þingmaður vitnar í, niður í 137,5 kr., eftir að hafa verið yfir 200 áður. Þá átta menn sig á því: Ef þau eru komin þetta langt niður, ætli við getum ekki bara náð þeim enn þá neðar? Enda höfðu það stöðugt verið skilaboðin frá stjórnvöldum; meira og meira undanhald, og hvatinn orðinn sá að halda bara áfram að reyna að vinna í þá áttina.
Auðvitað reyndu þeir á ýmsan hátt að beita stjórnvöld þrýstingi og hótuðu öllu illu, hótuðu meira að segja að kvarta til EFTA-dómstólsins. En þaðan bárust þau skilaboð að aðgerðir stjórnvalda eins og þær boðaðar voru 2015 væru í fullu samræmi við rétt Íslendinga. Búið var að slá það út af borðinu svoleiðis að ekki áttu menn að láta það trufla sig. En samt hélt undanhaldið áfram.