meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir andsvarið. Mér leikur hugur á að vita hvort þingmaðurinn sjái fyrir sér einhver þau atvik í málinu, miðað við þessa æpandi þögn stjórnarliða, sem stjórnarliðar gætu tekið til sín hvað það varðar að taka málið til endurskoðunar þegar það gengur til nefndar á milli umræðna. Maður hefur miklar áhyggjur af þessu. Hér sitja núna vissulega tveir fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna og hlusta andaktug á okkur og ég sé að bæði taka þau nótur jafnt og þétt upp eftir okkur. Er eitthvað í þessu máli sem hv. þingmanni sýnist liggja þannig að það sé eitthvað til skoðunar, að það sé eitthvað hlustað? (Forseti hringir.) Erum við í þeirri stöðu að þessar tvær ræður, sex og sjö mínútna langar, eru heildarútspil stjórnvalda í þessu risamáli?