149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[03:30]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Já, ég held því miður að þessar tvær stuttu ræður séu heildarútspil stjórnarflokkanna og þeirra fylgitungla þegar kemur að efnisatriðum málsins. Sjálfsagt eiga menn eftir að segja eitthvað þegar kemur að atkvæðagreiðslu en ég held að engin efnisleg umræða eigi eftir að fara fram miðað við hvernig málin hafa þróast, ekki nema hér verði einhver viðhorfsbreyting í nótt, að menn fari að svara þessum málum okkar.

Hvað gerist í nefndinni þegar hún tekur málið fyrir milli umræðna er ómögulegt að segja. Það eru meiri líkur en minni á að það verði stuttur nefndarfundur þar sem málið verður til sýnis og rifið út. Það virðist vera svona andinn hjá þessum aðilum sem eru að keyra þetta mál áfram. Það væri að sjálfsögðu vel þess virði að leggjast yfir málið í nefndinni, fá seðlabankastjóra og mögulega starfsmenn fjármálaráðuneytisins til að fara yfir þær spurningar sem við höfum lagt hér fram. Það mun örugglega liðka fyrir málinu í framhaldinu, 3. umr. og atkvæðagreiðslu og slíku ef þessum spurningum er svarað. Allt eru þetta að sjálfsögðu vangaveltur því við höfum engin viðbrögð fengið hér í umræðunni.