149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[03:44]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Fyrr í nótt fór ég í ákveðna samlíkingu við hv. þingmann hvað varðar sjávarútveginn. Þegar menn þurfa að undirbúa sig til að fara á veiðar þarf að sjá ákveðna hluti fyrir. Ég ætla ekki að fara þangað aftur.

Af því að hv. þingmaður hefur, eins og sá er hér stendur, sinnt sveitarstjórnarmálum og landsmálunum langar mig að spyrja hvort það sé ekki bara sú almenna regla að þegar stjórnvöld móta sér stefnu og segjast ætla að gera eitthvað, setja jafnvel ákveðin viðurlög við brotum gegn því, að það sé mikilvægt að sú stefna haldi. Er ekki mikilvægt að menn hverfi ekki frá því og gefi tóninn varðandi það ef ákveðinn hópur hagar sér illa verði hann ekki verðlaunaður sérstaklega með einhverjum hætti?

Það má líka líkja þessu við uppeldi barna; það barn sem ekki hlýðir, er frekt, fer sínu fram og er verðlaunað fyrir það eða látið eftir því — er það heppileg uppeldisaðferð? Ég segi þetta vegna þess að allt í þessu máli bendir til þess að enn og aftur eigi að verðlauna þessa aflandskrónueigendur sem hafa verið eins og óþekki krakkinn, eins og sá sem ekki vildi hlýða eða fara eftir reglunum, búinn að bíða af sér þolinmæði og þrautseigju þeirra sem eiga að stjórna og ráða.