meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Stefna og staðfesta, það mikilvægt að það tvennt fari saman ef menn ætla að ná árangri. Ef hins vegar er boðuð einhver stefna og hún sett fram með ákveðnum hætti en síðan fara smám saman allir að gefa eftir, hlaupa kannski eftir hótunum eða eftir því sem er í gangi á netmiðlum eða því sem fólk ætlast til og menn fylgja ekki stefnunni, endar það að sjálfsögðu með því að gengið er á lagið og reynt að nýta það í eigin þágu, líkt og virðist vera að gerast hér.
Mig langar að vita hvort hv. þingmaður er sammála mér: Gæti þessi umræða orðið aðeins markvissari og skýrari ef við hefðum fengið svör við mörgum af þeim spurningum sem við höfum borið hér upp?