149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[03:55]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Forseti. Í framhaldi af þessu svari hv. þingmanns langar mig að spyrja hann nokkurs konar samviskuspurningar: Hvernig liði hv. þingmanni með það ef hann væri hluti af stjórnarliði, stjórnarmeirihluta, og væri ætlað að greiða atkvæði með máli sem hann hefði ekki fengið neina kynningu á sem heitið gæti og þeir sem ættu að bera málið uppi treystu sér ekki einu sinni til að berjast fyrir því og ræða og skýra það? Með öðrum orðum, honum væri ekki aðeins ætlað að greiða atkvæði í blindni í þeirri merkingu að hann fengi ekki upplýsingar heldur myndi hann vita af því að þeir sem komu með málið og ættu að bera það uppi væru jafnvel ekki með það á hreinu sjálfir, treystu sér a.m.k. ekki til að verja það.