meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Nú höfum við rætt þetta mál í töluverðan tíma og ekki enn þá fengið nein svör. Það er spurning hvort forseti sé til í að beita sér fyrir því að í salinn komi einhver af stjórnarþingmönnum sem eru í húsi og e.t.v. taki þátt í umræðunni eða í það minnsta hlusti á hana og geti brugðist við og svarað þótt ekki væri nema í andsvörum. Ég hygg að forseta sé í mun að umræðan hér gangi. Þó veit ég það ekki.
Mig langar að spyrja þingmanninn út í það sem við höfum rætt hér fyrr í kvöld, það er sú óþægilega tilfinning sem við höfum — nú verð ég að haga máli mínu varlega — að þingmenn hafi kannski ekki kynnt sér nógu vel það mál sem hér er á dagskránni og sökum þess sé skortur á þátttöku þeirra í umræðunni. Ekki dettur mér í hug að gera mönnum það upp að þeir séu að hunsa Alþingi eða slugsa með einhverjum hætti eða að það séu einhver annarleg sjónarmið að baki því að þeir taki ekki þátt. Mér dettur ekki í hug að ætla mönnum slíkt.
Ég spyr hv. þingmann hvort það geti verið að það vanti einhvers konar kynningu eða upplýsingu fyrir hv. þingmenn þeirra flokka sem eru fylgjandi þessu máli, samfylkingarflokkanna svo dæmi sé tekið, sem hv. þingmaður kallar svo fallega, hinna stjórnarandstöðuflokkanna sem allir eru nú komnir í einn hnapp einhvern veginn og sækjast sér um líkir kannski í þessu öllu saman. Hafa líka verið kallaðir samstöðuflokkarnir hér. Ég spyr hvort þeir og stjórnarflokkarnir þurfi e.t.v. að fá einhvers konar upplýsingar eða kynningu á málinu til þess að þeir geti tekið þátt í umræðunni því þessi þögn er að verða býsna erfið.