149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[04:27]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Nú höfum við hv. þingmaður enga vissu eða grun um það hvort einhver kynning hafi farið fram á máli þessu fyrir þá þingmenn sem ekki sitja í umræddri nefnd. Nú höfum við enga vissu fyrir því að þingmenn hafi fengið tækifæri til að setja sig inn í málið. Ekki ætla ég mönnum hins vegar að greiða atkvæði, hvenær sem það verður, um þetta mál án þess að kynna sér eða vita um hvað málið snýst. Það væri ekki heppilegt að ætla mönnum slíkt. Það er hins vegar áhyggjuefni ef þingmenn almennt gera ekki greinarmun — og nú er ég ekki að saka neinn þingmann um það — á málum sem eru stór og mikilvæg, varða þjóðarhagsmuni eins og þetta mál, og öðrum málum. Ég er ekki að saka neinn um slíkt. En það hlýtur að vera áhyggjuefni (Forseti hringir.) þegar svona stórt mál á bara að rúlla í gegnum þingið eins og virðist stefnt að.