149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[04:44]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Við höfum nú nýtt þann tíma býsna vel sem við höfum haft í þessari umræðu. Við höfum ekki verið að kvarta mikið undan fundarstjórn forseta eða þinghaldinu almennt. Við höfum ekki kallað formann efnahags- og viðskiptanefndar til að sitja hér undir allri þessari umræðu, sem er þó alvanalegt að gera. Hins vegar sér forseti fulla ástæðu til að setja ofan í við þingmenn, segir svo að hann hafi lent í því sjálfur að sett hafi verið ofan í við hann af forseta, hann hafi ávallt tekið því vel. Það er líka sjálfsagt að taka því vel þegar eitt er látið yfir alla ganga.

Mig langar að spyrja hæstv. forseta, fundarstjórann í kvöld, í fyrsta lagi: Þykir forseta í lagi þegar aðrir þingmenn þjófkenna samþingmenn sína?

Í öðru lagi: Er í lagi að saka þingmenn um að nýta stöðu sína sem þingmenn eða ráðherra til að skara (Forseti hringir.) eld að eigin köku?